Handbolti

Þessir menn þurfa að sanna sig fyrir Degi til að komast á ÓL

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson með Evrópumeistaraskjöldinn.
Dagur Sigurðsson með Evrópumeistaraskjöldinn. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson, þjálfari Evrópumeistara Þýskalands, hefur valið 21 manna æfingahóp fyrir komandi Ólympíuleika í Ríó sem fara fram í ágúst.

Þýska liðið mun hefja æfingar í Stuttgart 9. júlí næstkomandi og spila æfingaleik við Túnis á sama stað 13. júlí.

„Fyrsta valið var ekki auðvelt. Það er ekki vandamál heldur hrós fyrir þýskan handbolta. Bundesligan gefur okkur marga möguleika," sagði Dagur við heimasíðu þýska sambandsins.

Þessi 21 menn fá nú tækifæri til að sanna sig fyrir Degi en þar sem að margir lykilmenn misstu af EM vegna meiðsla verður sannkeppnin um sæti í Ólympíuliðinu gríðarlega hörð.

Dagur þarf að velja 14+1 manna hóp fyrir 17. júlí næstkomandi en fyrsti leikur á Ólympíuleikunum er síðan á móti Svíum 7. ágúst.

Þýska liðið mun æfa aftur í Stuttgart frá 19. júlí og taka þátt í æfingamóti í Frakklandi 22. til 24. júlí þar sem Þjóðverjar mæta Dönum og svo annaðhvort Frökkum eða Egyptum.

Þýska liðið flýgur til Rio de Janeiro 1. ágúst og spilar æfingaleik við Króata út í Brasilíu áður en handboltakeppni Ólympíuleikanna hefst.

Auk Svía þá eru í riðli með Þjóðverjum Pólland, Brasilía, Slóvenía og Egyptaland.

Æfingahópur Þýskalands fyrir ÓL 2016:

Markverðir: Carsten Lichtlein (VfL Gummersbach), Andreas Wolff (THW Kiel) og Silvio Heinevetter (Füchse Berlin).

Línumenn: Patrick Wiencek (THW Kiel), Hendrik Pekeler (Rhein-Neckar Löwen), Jannik Kohlbacher (HSG Wetzlar) og Erik Schmidt (TSV Hannover-Burgdorf).

Hægri skyttur: Steffen Weinhold (THW Kiel), Fabian restart (Füchse Berlin) og Kai Häfner (TSV Hannover-Burgdorf)

Leikstjórnendur: Tim Kneule (Frisch Auf Göppingen) og Martin Strobel (HBW Balingen-Weilstetten).

Vinstri skyttur: Julius Kühn (VfL Gummersbach), Christian Dissinger (THW Kiel), Finn Lemke (SC Magdeburg), Steffen Fäth (Füchse Berlin) og  Paul Drux (Füchse Berlin)

Hægra horn: Tobias Reichmann (KS Vive Tauron Kielce) og Patrick Groetzki (Rhein-Neckar Löwen)

Vinstra horn: Rune Dahmke (THW Kiel) og Uwe Gensheimer (Paris St. Germain).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×