Fótbolti

Þessir koma til greina í lið ársins hjá UEFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Real Madrid vann Meistaradeildina í ár.
Real Madrid vann Meistaradeildina í ár. Vísir/Getty
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú gefið út hvaða 40 fótboltamenn koma til greina í valinu á liði ársins á knattspyrnuárinu 2014.

Níu leikmenn Bayern München eru á listanum að þessu sinni og heimsmeistarar Þjóðverja eru að sjálfsögðu mjög áberandi í þessum 40 manna hópi.

Gareth Bale er eini breski leikmaðurinn sem kemst inn á listann en hann hjálpaði Real Madrid að vinna Meistaradeildina á árinu. Fulltrúar ensku úrvalsdeildarinnar eru allt erlendir leikmenn.

Luis Suarez er ekki tilnefndur og virðist ekki koma til greina frekar en hjá FIFA. Suarez stóð sig frábærlega með Liverpool en var síðan dæmdur í bann fyrir að bíta mann á HM í Brasilíu.



Tilnefningar í lið ársins hjá UEFA:

Markmenn

Beto (Sevilla), Gianluigi Buffon (Juventus), Thibaut Courtois (Chelsea), Manuel Neuer (Bayern München).

 

Varnarmenn

David Alaba, Medhi Benatia, Jerome Boateng og Philipp Lahm (allir í Bayern München), Daniel Carvajal og Sergio Ramos (báðir í Real Madrid), Ezequiel Garay (Zenit St Petersburg), Diego Godin and Miranda (báðir í Atletico Madrid), Mats Hummels (Borussia Dortmund), Vincent Kompany og Pablo Zabaleta (báðir í Manchester City).

Miðjumenn

Xabi Alonso and Arjen Robben (báðir í Bayern München), Arda Turan and Koke (báðir í Atletico Madrid), Angel Di Maria (Manchester United), James Rodriguez, Toni Kroos and Luka Modric (allir í Real Madrid), Paul Pogba (Juventus), Ivan Rakitic (Barcelona), Marco Reus (Borussia Dortmund) og Yaya Toure (Manchester City).

Framherjar

Alexis Sanchez (Arsenal), Gareth Bale, Karim Benzema and Cristiano Ronaldo (allir í Real Madrid), Diego Costa (Chelsea), Zlatan Ibrahimovic (Paris St-Germain), Robert Lewandowski and Thomas Muller (báðir í Bayern München), Lionel Messi and Neymar (báðir í Barcelona), Jonatan Soriano (FC Salzburg) og Carlos Tevez (Juventus).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×