Íslenski boltinn

Þessir dæma leikina á morgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helgi Mikael Jónasson dæmir leik ÍBV og Fjölnis á Hásteinsvelli.
Helgi Mikael Jónasson dæmir leik ÍBV og Fjölnis á Hásteinsvelli. vísir/anton
Búið er að raða niður dómurum á fyrstu leiki Pepsi-deildar karla í fótbolta.

Pepsi-deildin hefst á morgun með þremur leikjum. ÍA fær Íslandsmeistara FH í heimsókn, Fjölnir sækir ÍBV heim og Valur og Víkingur Ó. mætast á Hlíðarenda.

Þóroddur Hjaltalín dæmir leik ÍA og FH á Akranesi. Honum til aðstoðar verða Frosti Viðar Gunnarsson og Eðvarð Eðvarðsson.

Helgi Mikael Jónasson sér um flautuleik á Hásteinsvelli þar sem ÍBV og Fjölnir mætast. Aðstoðardómarar eru þeir Gylfi Tryggvason og Þórður Arnar Árnason.

Helgi Mikael þykir einn efnilegasti dómari landsins en hann dæmdi fimm leiki í Pepsi-deildinni í fyrra, þ.á.m. leik ÍBV og Fjölnis í Vestmannaeyjum.

Lögreglumaðurinn Pétur Guðmundsson dæmir svo leik Vals og Víkings Ó. Honum til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Gunnar Helgason.

Leikir morgundagsins:

17:00 ÍA - FH (beint á Stöð 2 Sport HD)

17:00 ÍBV - Fjölnir

19:15 Valur - Víkingur Ó. (beint á Stöð 2 Sport 2 HD)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×