Menning

Þessi verkefni eru tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tónlistarhátíðin Eistnaflug er tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár.
Tónlistarhátíðin Eistnaflug er tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár. Mynd/Freyja Gylfadóttir
Alþýðuhúsið á Siglufirði, tónlistarhátíðin Eistnaflug á Neskaupsstað, List í ljósi á Seyðisfirði, Nes – Listamiðstöð á Skagaströnd, Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi og Vesturfarasetrið á Hofsósi eru tilnefndi til Eyrarrósarinnar í ár.

Alls bárust 37 umsóknir Eyrarrósina hvaðanæva af landinu en um er að ræða viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins.

 

„Eyrarrósin beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík,“ að því er segir í tilkynningu.

Eyrarrósinni fylgir tveggja milljóna króna verðlaunafé en að auki munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn þann 16. febrúar næstkomandi í Verksmiðjunni að Hjalteyri, sem er handhafi Eyrarrósarinnar frá síðasta ári. Frú Eliza Reid, nýr verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×