Lífið

Þessi saga og söngur fór alveg með Katy Perry

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Francisco heillaði dómarana þrjá.
David Francisco heillaði dómarana þrjá.
David Francisco mætti í áheyrnaprufu í Amercian Idol á dögunum og tók hann lagið Isn't She Lovely með Stevie Wonder.

Francisco er 25 ára og flutti hann til Nashville árið 2016 til að einbeita sér alfarið að tónlistinni. Hann varð fyrir því óláni að verða fyrir bifreið og lamaðist hann fyrir neðan mitti. Með tímanum fékk hann aftur tilfinningar í fótleggi sína. Við tók heljarinnar endurhæfing og hefur David náð ótrúlegum bata.

Hann mætti til að mynds með hækjur í áheyrnaprufuna og hafði hann mikil áhrif á dómarana, og þá sérstaklega á Katy Perry. Hún táraðist og báru tilfinningarnar hana ofurliði eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×