Tónlist

Þessi lög tekur Pharrell á tónleikum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Pharrell þykir þrusugóður á tónleikum.
Pharrell þykir þrusugóður á tónleikum. vísir/getty
Ef allt fer að óskum heldur tónlistarmaðurinn Pharrell Williams tónleika á Íslandi næsta sumar eins og Vísir sagði frá fyrr í dag.

Pharrell lauk nýverið við tónleikaferðalag sitt Dear Girl sem hófst 9. september í Manchester og lauk 16. október síðastliðinn í París. Hann réðst í tónleikaferðalagið til að kynna nýjustu plötu sína G I R L sem kom út á þessu ári.

Á tónleikaferðalaginu tók hann mörg af sínum þekktustu lögum af ferlinum sem hófst þegar hann hitti Chard Hugo í sumartónlistarbúðum á unglingsárunum. Þá spilaði Pharrell á hljómborð og trommur en Chard á tenórsaxófón. Þeir voru saman í lúðrasveit og stofnuðu sveitina The Neptunes með vinum sínum Shay Haley og Mike Etheridge á tíunda áratugnum.

Síðan þá hefur Pharrell unnið með mörgum af frægustu tónlistarmönnum samtímans, svo sem Maroon 5, Frank Ocean, Madonnu, Britney Spears, Robin Thicke, Snoop Dogg og Shakiru. Þá er Pharrell maðurinn á bak við marga þekktustu poppsmelli síðustu ára eins og Boys, Get Lucky, Blurred Lines og Happy.

Búið er að staðfesta nokkra tónleika Pharrell á næsta ári. Hann spilar á Loolapalooza-tónlistarhátíðinni í Argentínu og Brasilíu í mars, á Írlandi 20. júní og í Danmörku 27. júní.

Lagalisti hans á Dear Girl-tónleikaferðalaginu taldi 22 lög og hér fyrir neðan má hlusta á þau.

1. Come Get it Bae



2. Frontin'



3. Hunter



4. Marilyn Monroe



5. Brand New



6. Hot in Herre



7. I Just Wanna Love U (Give It 2 Me)



8. Pass the Courvoisier, Part II



9. Gush



10. Rock Star



11. Lapdance



12. She Wants to Move



13. Beautiful



14. Drop It Like It's Hot



15. Lost Queen



16. It Girl



17. Hollaback Girl



18. Blurred Lines



19. Get Lucky



20. Lose Yourself to Dance



21. Gust of Wind



22. Happy








Fleiri fréttir

Sjá meira


×