Skoðun

Þessi andsk ... flugvöllur

Jón Hjaltason skrifar
Það á að leggja niður Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýrinni. Á því leikur enginn vafi. Sömu menn og skera niður við trog þessa mikilvægustu samgöngumiðstöð þjóðarinnar vilja engu að síður að við kjósum þá á þing, meðal annars til að efla lífæð þjóðarinnar, sjálft samgöngukerfið. Aðspurðir út í þessi öfugmæli svara þeir: Engar áhyggjur, við byggjum nýjan flugvöll í Hvassahrauni.

Ég spyr: Trúir því einhver að ríkissjóður verði svo troðinn fjármunum, og það fyrir árið 2022, að spanderað verði tugmilljörðum í byggingu flugvallar steinsnar frá Keflavíkurflugvelli? Auðvitað ekki heldur verður innanlandsflugið fært til Keflavíkur. Líkleg afleiðing þess er að allt innanlandsflug verður óarðbært. Í kjölfarið mun Flugfélag Íslands hætta starfsemi á Íslandi og flytja sig alfarið yfir til Grænlands. Munum við sætta okkur við þessa þróun mála? Nei, að sjálfsögðu ekki. Og hvað yrði þá til ráða? Svarið er aðeins eitt: Ríkisstyrkt innanlandsflug um ókomna framtíð.

Ég get svo sem skilið þá eigingjörnu og skammsýnu ósk Samfylkingar í Reykjavík að vilja leggja niður flugvöllinn til að byggja á honum hús en síður að Samfylkingin á Akureyri taki undir slíkan málflutning. Ég er heldur ekki ýkja trúaður á þau rök að flugvöllurinn skemmi allt alvöru borgarskipulag Reykjavíkur, að hann stefni þéttingu byggðar í voða og sogi kraft úr uppbyggingu miðborgar.

Ég er hins vegar sannfærður um að borgarstjórn og hið háa Alþingi gera landsbyggðinni ekki annan óleik verri en að leggja niður flugvöllinn. Hann er sannkölluð lífæð og ég skil ekki hvernig pólitíkusar geta blygðunarlaust haldið því fram að þeir vilji efla byggð í landinu – og ekki bara á suðvesturhorninu – á sama tíma og þeir vinna að því leynt og ljóst að eyðileggja flugvöllinn í Vatnsmýri.

Ég segi því: Gerum þetta að kosningamáli. Kjósum fulltrúa okkar á þing sem skilja mikilvægi Reykjavíkurflugvallar. Og eru tilbúnir að berjast gegn því að samgöngukerfi þjóðarinnar verði stórlega laskað svo byggja megi fleiri lúxus-hótel og íbúðir fyrir auðugt fólk - eða halda menn að íbúðarhúsnæði í Vatnsmýrinni verði í ódýrari kantinum?

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×