Lífið

Þessar stjörnur verða á bardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bardagi sem fer í sögubækurnar.
Bardagi sem fer í sögubækurnar. vísir/getty
Uppselt er á risabardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor sem fram fer í Las Vegas þann 26. ágúst. Bardaginn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en dýrustu miðarnir kosta um fimmtán milljónir.

Áhuginn á bardaganum er mikill og seldust miðarnir upp á skömmum tíma.

Mayweather, sem er fertugur, var búinn að leggja hanskana á hilluna eftir glæstan feril þar sem hann tapaði aldrei bardaga. Hann mætir nú UFC-stjörnunni Conor McGregor, sem hefur aldrei áður barist sem atvinnumaður í hnefaleikum.

Vefsíðan TMZ hefur nú birt lista yfir frægt fólk sem verður í höllinni að fylgjast með þessu rosalega bardaga.

Hér að neðan má sjá listann:

- Angelina Jolie

- Drake

- Elon Musk

- Diddy

- Mark Wahlberg

- Denzel Washington

- Charlize Theron

- LL Cool J

- Jamie Foxx

- LeBron James

- Bob Kraft

- Rick Ross

- Adam Levine

- Michael Bay

- Avicii






Fleiri fréttir

Sjá meira


×