Innlent

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur

Atli Ísleifsson skrifar
Tilnefndir höfundar, þýðendur og myndskreytingar við athöfnina í Gerðubergi fyrr í dag.
Tilnefndir höfundar, þýðendur og myndskreytingar við athöfnina í Gerðubergi fyrr í dag. Reykjavíkurborg.
Fimmtán bækur hafa verið tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur, en greint var tilnefningum við hátíðlega athöfn í Gerðubergi í dag.  

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að tilnefnt hafi verið í þremur flokkum – fimm bækur í hverjum flokki. Flokkarnir sem um ræðir eru besta frumsamda bókin, best myndskreytta barnabókin og besta þýðing á barnabók sem gefin var út á árinu 2016.

Sjá má tilnefningarnar að neðan.

Besta myndskreytta barnabókin á árinu 2016

  • Hafsteinn Hafsteinsson fyrir Enginn sá hundinn – útg. Mál og menning
  • Linda Ólafsdóttir fyrir Íslandsbók barnanna – útg. Iðunn
  • María Sif Daníelsdóttir fyrir Vísnagull – útg. Tónagull
  • Lína Rut Wilberg fyrir Þegar næsta sól kemur – útg.  NB forlag
  • Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir Ævintýrið af Sölva og Oddi konungi – útg. Töfrahurð


Besta þýðing á barna- og unglingabók á árinu 2016

  • Harpa Magnadóttir fyrir þýðingu sína á bókinni 172 tímar á tunglinu eftir norska rithöfundinn Johan Harstad – útg. Björt.
  • Ingibjörg Hjartardóttir  fyrir þýðingu sína á bókinni Annað land eftir sænska rithöfundinn Håkan Lindquist – útg. Salka
  • Lemme Linda Saukas Olafsdóttir fyrir þýðingu sína á Einhver Ekkineinsdóttir eftir eistnesku skáldkonuna Kåtlin Kaldmaa – útg. Bókstafur
  • Halla Sverrisdóttir fyrir þýðingu sína á bókinni Innan múranna eftir bandarísku skáldkonuna Nova Ren Suma – útg. Björt.
  • Guðni Kolbeinsson fyrir þýðingu sína á Norn eftir dansk/sænska tvíeykið Kim Fupz Aakeson og Rasmus Bregnhöi – útg. Mál og menning


Besta frumsamda barna- og unglingabókin á árinu 2016

  • Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir fyrir Dodda – bók sannleikans – útg. Bókabeitan
  • Margrét Tryggvadóttir fyrir Íslandsbók barnanna – útg. Iðunn
  • Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir fyrir Ormhildarsögu – útg. Salka
  • Ragnheiður Eyjólfsdóttir fyrir Skuggasögu II: Undirheima – útg. Mál og menning
  • Hildur Knútsdóttir fyrir Vetrarhörkur – útg. JPV
 

Verðlaunin verða hefðinni samkvæmt afhent í Höfða síðasta vetrardag 19. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×