Íslenski boltinn

Þess vegna er hann kallaður Aukaspyrnu-Ívar | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ívar Örn Jónsson er sparkviss leikmaður.
Ívar Örn Jónsson er sparkviss leikmaður. vísir/pjetur
Ívar Örn Jónsson, vinstri bakvörður Víkings, skoraði þriðja mark liðsins þegar það vann Keflavík, 3-1, í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í fótbolta í gærkvöldi.

Eins og kom fram á Vísi fyrr í dag er þetta fyrsti sigur Víkinga í Keflavík síðan 1983, eða áður en þriggja stiga reglan var tekin upp.

Ívar er skotmaður góður og ber viðurnefnið Aukaspyrnu-Ívar, en það fékk hann eftir stórleik sinn í átta liða úrslitum bikarsins gegn BÍ/Bolungarvík síðasta sumar.

Ívar Örn skoraði tvö stórglæsileg mörk beint úr aukaspyrnum á Torfnesvelli, en það var þriðja mark hans í bikarnum á síðustu leiktíð.

Þessi bráðefnilegi bakvörður skoraði eitt mark í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð úr vítaspyrnu gegn Breiðabliki, en það var fyrsta mark hans í efstu deild.

Eins og sjá má í spilaranum hér að ofan er góð og gild ástæða fyrir því að bakvörðurinn ungi er kallaður Aukaspyrnu-Ívar. Markvörður Keflavíkur hefði þó klárlega átt að gera betur.

Aukaspyrnumörk Ívars má sjá hér að neðan.

Markið gegn Keflavík: Mörkin gegn Djúpmönnum:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×