Erlent

Theresa May næsti forsætisráðherra Bretlands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Theresa May verður næsti forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May verður næsti forsætisráðherra Bretlands. vísir/getty
Andrea Leadsom mun ekki bjóða sig fram til að leiða Íhaldsflokkinn í ríkisstjórn. Þetta tilkynnti hún fyrir skemmstu en þetta þýðir að yfirgnæfandi líkur eru á því að Theresa May innanríkisráðherra verði næsti forsætisráðherra Bretlands þar sem David Cameron mun hætta vegna niðurstöðu Brexit-kosningarinnar.

May er nú ein eftir í framboði til leiðtoga Íhaldsflokksins og mun því ekki vera kosið heldur mun sérstök nefnd innan Íhaldsflokksins skipa nýjan leiðtoga. Afar ólíklegt er að gengið verði framhjá May þar sem hún nýtur meðal annars mikils stuðnings innan þingflokks Íhaldsflokksins.

í yfirlýsingu sem Leadsom las upp kvaðst hún ekki hafa nægan stuðning innan þingflokksins til þess að leiða ríkisstjórn. Hún hefði því ákveðið að hætta við framboð sitt og sagðist styðja May heilshugar.

May verður önnur konan til að gegna embætti forsætisráðherra Bretlands en sú fyrsta var einnig leiðtogi Íhaldsflokssins, Margaret Thatcher. Samkvæmt Guardian verður Theresa May orðin forsætisráðherra í lok vikunnar og jafnvel fyrr en upphaflega átti kjörið um nýjan leiðtoga ekki að fara fram fyrr en í byrjun september.

May bíður það erfiða verkefni að stýra útgöngu Breta úr Evrópusambandinu í samræmi við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í júní þar sem rúmlega helmingur Breta kaus að ganga úr ESB. May hefur sagt að ekki komi til greina að sniðganga niðurstöðuna en hún var ein þeirra þingmanna Íhaldsflokksins sem vildi vera áfram í ESB.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×