Skoðun

Þér er boðið

Birgir Örn Guðjónsson skrifar
Fréttir síðustu vikna af földu fé á fjarlægum eyjum eru engar fréttir. Þetta er bara staðfesting á því sem við vissum alltaf. Við vissum vel að menn fóru með fullt af peningum úr landi. Við vissum vel að þeir ríku héldu áfram að vera ríkir þrátt fyrir hrun. Við vissum líka alveg að Jón Ásgeir átti fyrir meiru en diet kók. Við vissum að við hin stóðum eftir á klístruðu gólfi eftir að partýið fór úr böndunum. Við vissum að við sátum eftir með reikninginn.

Fréttir síðustu vikna eru stóra „sko“ almúgans. Núna getum við loksins sagt „sko, ég vissi það!“. Við getum bent framan í þá sem áttu VIP kort í Panama klúbbinn og sagt að þetta var drullu ljótt af ykkur og þið ættuð að skammast ykkar. Þið voruð þið að svindla og það komst upp um ykkur. Okkur er alveg sama hvort svindlið hafi tekist eða ekki. Þið eruð jafn sek um svindl, svik og pretti gagnvart okkur, sama hvort fjársjóðsfélagið ykkar hafi floppað eða toppað.

Heiðarleiki og sanngirni eru margfallt verðmætari en loftbólu-góðæri og matador peningar. Ég er þakklátur fyrir að samfélagið virðist nú gera sér grein fyrir því. Ég vona að samfélagið muni í þetta sinn. Engin lögmannsstofa í Panama getur hjálpað þér að kaupa æru þína og samvisku til baka.

Ég er þakklátur fyrir þessa uppljóstrun á þessum tímapunkti. Við erum nefnilega á góðri siglingu inn í sama ruglið og sökkti okkur síðast. Boðsgestum síðasta partýs er aftur boðið og við eigum að bíða spennt eftir brauðmolum á gólfinu og flöskum með botnfylli af diet kók með syndandi sígarettustubbum. „Kannski finnurðu ónotað boðskort og kemst inn“ er blekkingin sem heldur hlífðarskyldi yfir græðgidrifnum kapitalismanum. Heldur okkur frá því að segja „hingað og ekki lengra“. En bestuvinafélagið og Panamaklúbburinn er ekki fyrir okkur. Lets face it. Við erum þjónar þeirra og verndarar, ekki boðsgestir.

Ég vil engum illt. Ekki heldur þeim sem hafa gert okkur illt. Þeir ætluðu líka fæstir að gera okkur illt. Ég verð að gefa þeim það. Þeir voru blindaðir af græðgi og gleymdu sér í keppni við jakkafataklædda ofurmennið í næstu þotu. Þeir voru klappaðir upp og hylltir. Þeir notfærðu sér kerfi sem er götótt, gallað og úldið.

Það sem ég vil er að fréttir síðustu vikna kenni mönnum eitthvað. Geri okkur að betra samfélagi. Ég vil að við lærum að sumt er ekki þess virði. Góðæri er ekki mælt með einkaþotum og lúxus jeppum. Raunverulegt góðæri er mælt með heiðarleika, náungakærleika og sanngjörnu samfélagi. Það er góðærið sem ég bíð eftir. Í það hafa allir fengið boðskort.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×