Handbolti

Theodór: Ég skoraði átta og var betri en Eiður

Ingvi Þór Sæmundsson í Kaplakrika skrifar
Theodór Sigurbjörnsson fagnar marki í Kaplakrika í kvöld.
Theodór Sigurbjörnsson fagnar marki í Kaplakrika í kvöld. vísir/anton
„Mér fannst við eiga að taka þennan leik, en við vorum klaufar að hafa ekki náð að klára þetta,“ sagði Theodór Sigurbjörnsson, hornamaður íBV, eftir jafnteflið gegn FH í Kaplakrika í kvöld.

Eyjamenn voru yfir nær allan leikinn, en gáfu eftir undir lokin og FH-ingar gengu á lagið og tryggðu sér stig.

„Þetta var fínn leikur og vel spilaður af okkar hálfu. Við köstuðum boltanum reyndar svolítið frá okkur í lokin sem gerði það að verkum að FH komst inn í leikinn. Úr varð hörkuleikur,“ sagði Theodór sem var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk.

Bróðir Theodórs, Eiður Aron, var einnig á skotskónum í kvöld, en hann skoraði mark Sandnes Ulf í 1-1 jafntefli gegn Brann í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. En hvor þeirra bræðra átti betra kvöld að mati Theodórs?

„Hvað skoraði ég mörg mörk? Átta segirðu. Þá var ég betri,“ sagði Eyjamaðurinn léttur áður en hann hljóp út í rútu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×