Sport

Þekkti ekki eina stærstu stjörnu NFL-deildarinnar | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Adrian Peterson í leik með Vikings.
Adrian Peterson í leik með Vikings. vísir/getty
Það er verið að gera mikið grín að fréttamanni Fox 26 í Houston í dag.

Sá heitir John Donnelly og var að gera innslag á sínu heimasvæði um vegareiði. Einn af þeim vegfarendum sem hann stöðvaði til að ræða um málið var NFL-hlauparinn Adrian Peterson.

Peterson hefur verið í NFL-deildinni í tíu ár og verið einn besti hlaupari deildarinnar. Hann var valinn besti leikmaður NFL-deildarinnar árið 2012 og er fastagestur á skjám Bandaríkjamanna.

Þrátt fyrir það þá vissi Donnelly ekki við hvern hann var að tala. Í lok viðtalsins biður hann um nafn viðmælanda og er hann fattar við hvern hann var að tala þá skammast hann sín.

Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan. Donnelly setti það sjálfur á Facebook.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×