Lífið

Þekkir þú þessar jólagjafir?

Bjarki Ármannsson skrifar
Einhver varð viðskila við þessa flottu pakka á Laufásvegi.
Einhver varð viðskila við þessa flottu pakka á Laufásvegi. Mynd/Eyrún Fríða Árnadóttir
Eyrún Fríða Árnadóttir lýsir á Facebook eftir eiganda þriggja jólagjafa sem hún fann í poka á Laufásvegi í Reykjavík í dag. Mynd sem sýnir pakkana greinilega hefur verið deilt rúmlega þrjú hundruð sinnum þegar þetta er skrifað.

„Það er nú bara gott að fólk er að hjálpast að við að koma þessu til skila,“ segir Eyrún í samtali við Vísi. Jólagjafirnar eru vandlega innpakkaðar en Eyrún segir engin merkimiða á þeim. Því verði bara að treysta á að rétti eigandinn gefi sig fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×