Handbolti

Þeir verja hann ekki uppi frá Rúnari Kára

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Kárason lætur skot vaða í leiknum á móti Makedóníu.
Rúnar Kárason lætur skot vaða í leiknum á móti Makedóníu. Vísir/EPA
Rúnar Kárason hefur átt mörg þrumuskotin á HM í handbolta en íslenska landsliðið tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum með jafntefli á móti Makedóníu í lokaumferð riðlakeppninnar í gær.

Það er fróðlegt að skoða betur hvar skotin hans Rúnars Kárasonar eru að fara og hvar markverðirnir eru ekki að verja boltana frá honum.

Rúnar átti flottan leik á móti Makedóníu og var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk. Hann skoraði jöfnunarmarkið og fékk síðan einnig tækifæri til að tryggja liðinu sigurinn.

Lokaskot Rúnars var hinsvegar varið og Ísland mætir því Frakklandi í 16 liða úrslitunum en ekki Noregi.

Rúnar skoraði 22 mörk úr 39 skotum en tíu þeirra komu með langskotum samkvæmt tölfræði mótshaldara.

Rúnar hafði mest áður skorað 21 mark á stórmóti en það gerði hann á EM 2014. Rúnar er því búinn að setja nýtt persónulegt met á þessu móti.

Það má líka sjá í opinberri tölfræði heimsmeistaramótsins hvert Rúnar er að skjóta boltanum á markið og þegar sú samantekt er skoðuð er auðvelt að fullyrða það að markverðir mótherjanna verja ekki uppi frá Rúnari.

Í þessum fimm leikjum hefur Rúnar tekið 10 skot efst í markið og þau hafa öll legið í marknetinu. Hans besti staður er uppi í hægri horninu en öll sex skotin hans þangað hafa þanið út netmöskvanna.

Hér  fyrir neðan má sjá hvert skotin hans Rúnars hafa farið á mótinu og hér er einnig hægt að skoða tölfræði hans betur á heimasíðu heimsmeistaramótsins.

Skotin hans Rúnars Kárasonar á HM í Frakklandi.Mynd/Heimasíða HM 2017

Tengdar fréttir

Geir: Var á leið að borðinu að taka leikhlé

"Akkúrat núna er ég ókátur með að hafa ekki unnið,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en þó svo lið hans hafi kastað frá sér sigrinum er það komið í 16-liða úrslit.

Andlegt hrun á lokakaflanum

Strákarnir okkar náðu markmiði sínu að komast í 16-liða úrslit á HM en sú niðurstaða var ansi bitur eftir að liðið kastaði frá sér sigri gegn Makedóníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×