Viðskipti erlent

Þeir sem stunda kynlíf reglulega fá hærri laun

ingvar haraldsson skrifar
Ekki skal fullyrt um laun njósnara hennar hátignar enda var hann ekki hluti af rannsókninni.
Ekki skal fullyrt um laun njósnara hennar hátignar enda var hann ekki hluti af rannsókninni. mynd/getty
Þeir sem stunda kynlíf tvisvar til þrisvar í viku fá 4,5 prósent hærri laun en þeir sem sjaldnar stunda kynlíf. Þetta er niðurstaða rannsóknar grískra háskóla sem náði til 7.500 einstaklinga. The Daily Mail greinir frá.

Forsprakki rannsakenda, Nick Drydakis frá Anglia Ruskin háskólanum, segir að bæði séu til kenningar um að skírlífi leiði til lægri launa og lægri laun leiði til þess að einstaklingar stundi sjaldnar kynlíf. Mikilvægt sé að frekari rannsóknir verði framkvæmdar á heilsu og kynhegðun einstaklinga.

Drydakis bendir á að samkvæmt þarfapíramída Maslow nái hamingjusamir og lífsglaðir einstaklingar meiri árangri í vinnu sem skili sér í hærri launum sem gæti skýrt niðurstöðu rannsóknarinnar.

Í rannsókninni sem birt verður í International Journal of Manpower kemur einnig fram að heilsuveilir stundi almennt minna kynlíf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×