Tónlist

Þegar Prince tók Purple Rain í grenjandi rigningu á Super Bowl: „Getið þið látið rigna meira?“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Prince lét ekki úrhellisrigningu stoppa sig þegar hann sá um hálfleikssýningu Super Bowl árið 2007.
Prince lét ekki úrhellisrigningu stoppa sig þegar hann sá um hálfleikssýningu Super Bowl árið 2007. Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Prince lést í dag og þegar eru aðdáendur hans farnir að minnast hins mikla tónlistarmanns.

Meðal þeirra sem vottað hafa honum virðingu sína er NFL-deildin í Bandaríkjunum en Prince var aðalnúmerið á hálfleikssýningunni í Super Bowl, einum stærsta viðburði heimsins á hverju ári, árið 2007.

Sú hálfleikssýning var þó engin venjuleg hálfleikssýning. Það var grenjandi rigning og höfðu skipuleggjendur sýningarinnar áhyggjur af því að Prince myndi ekki vilja spila. Þeir hringdu því í hann til að kanna stöðuna en fengu einfalt svar til baka:

„Getið þið látið rigna meira?“

Sýningin var mögnuð en Prince flutti lög á borð við We Will Rock You, All Along the Watchtower og að sjálfsögðu Purple Rain sem líklega hefur aldrei verið flutt við jafn viðeigandi aðstæður.

Sjá má myndbandið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×