Skoðun

Þegar enginn hlustar

Andri Steinn Hilmarsson skrifar
Á laugardagsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir viku var ég spurður hvers vegna ungt fólk ætti að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þessarar spurningar hef ég oft spurt sjálfan mig að. Stjórnmálaflokkur sem hampar sér fyrir að tala fyrir frelsi einstaklingsins en býr á sama tíma við linnulausa innanbúðar árekstra frjálslyndra og íhaldssamra sjónarmiða er ekki aðlaðandi fyrir ungt fólk.

Ungt fólk hefur aldrei verið jafnt frjálslynt eins og í dag. Það segir sig því sjálft að flokkur sem jaðrar við að miða lagasetningu sína af kristnum gildum, forsjárhyggju og íhaldsemi er ekki flokkur sem talar til ungs fólks. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki nýtt þau mörgu tækifæri sem hann hefur til höfða til ungs fólks. Heldur hefur hann, líkt og flestir stjórnmálaflokkar, komið fram við ungt fólk eins og að skoðanir þeirra og atkvæði skipti ekki máli. Að auki eru málefni ungs fólks nær alltaf látin mæta afgöngum. Hvergi, hvorki á þingi né í sveitarstjórn hefur flokkurinn verið málsvari ungs fólks. Við erum ekki spurð og á okkur er ekki hlustað þegar ákvarðanir eru teknar sem varða okkur beint. Það ætti því ekki að koma á óvart að þátttaka ungs fólks í bæði kosningum og stjórnmálum hefur farið snar minnkandi. Því það vill oft gerast að þegar ekki er hlustað, þá hættir maður að tala.

Þau viðhorf og þær skoðanir sem við höfum þegar við erum ung eru sjónarmið sem einkennast oftar en ekki af frjálslyndi og róttækni. Það eru forréttindi sem við vöxum flest upp úr. Það þýðir þó ekki að þau viðhorf séu ekki jafn mikils verð og þau sem við höfum þegar lengra er komið á lífsleiðina. Öll mál eru okkar mál. Það ætti því að vera sjálfsögð krafa að fá að taka þátt í ákvarðanatökum sem munu móta framtíðina, því hún er okkar.

Þrátt fyrir slæma ásýnd ungs fólks á flokknum, þá er sú spurning sem ég var spurður að á laugardaginn jafnframt það sem heldur mér í flokknum. Því hér eru stærstu tækifærin til að snúa vörn í sókn. Frelsi og sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins hefur dregið ungt fólk að flokknum í 85 ár og þarf flokkurinn að byrja að sína þessa stefnu í verki. Ef að ungt fólk sér ekki ástæðu til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þurfum við að búa hana til. Það gerum við með því að kjósa ungt fólk til áhrifa.

Höfundur er frambjóðandi í 4.-5. sæti prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og formaður Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.




Skoðun

Sjá meira


×