Sport

Þegar Atli Eðvalds hitti Muhammad Ali

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ali og Atli bregða á leik.
Ali og Atli bregða á leik. mynd/úr einkasafni
Sem kunnugt er lést hnefaleikamaðurinn Muhammad Ali á föstudaginn, 74 ára að aldri. Dánarorsök Alis var ígerð en hann glímdi við veikindi í öndunarfærum síðustu dagana sem hann lifði.

Það eru eflaust ekki margir Íslendingar sem hittu Ali, hvað þá að eiga mynd af sér með honum. Það getur Atli Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði og -þjálfari í knattspyrnu, hins vegar sagt.

Myndin hér að ofan var tekin 15. september 1984 á heimavelli Fortuna Düssel­dorf, í hálfleik á leik liðsins gegn Eintracht Braunschweig í þýsku úrvalsdeildinni.

„Mig minnir að á þessum tíma hafi Ali verið að kynna box á vegum Alþjóðahnefaleikasambandsins um allan heim,“ sagði Atli í samtali við Fréttablaðið í gær.

Hann kom Düsseldorf yfir á 27. mínútu en gestirnir jöfnuðu metin 11 mínútum síðar. Það var svo í hálfleik sem hann hitti meistarann sjálfan.

„Hann sá leikinn hjá okkur. Með okkur á myndinni eru forseti borgar­stjórnar í Düsseldorf og forseti félagsins. Þeir eru að taka á móti honum og þegar ég er að koma aftur inn á völlinn kynna þeir mig fyrir honum. Við spjölluðum í 3-4 mínútur og þá voru myndirnar teknar,“ sagði Atli. En hvað fór þeim í milli?

„Það var æðislegt að hitta hann. Ég sagði við hann „great honour“. Og hann svaraði: „I am the greatest.“ Ég man ekki eftir öllu sem við sögðum en hann talaði um að hann væri mestur og væri að kynna boxið.“

Á þessum tíma var Ali nýbúinn að leggja hanskana á hilluna eftir frábæran feril og var enn í flottu formi.

„Þú sérð hvers konar skrokkur þetta er. Ég þótti ágætlega stór miðað við fótboltamann en er eins og smá peð við hliðina á honum,“ sagði Atli. Þetta sama ár, 1984, greindist Ali með Parkinson-sjúkdóminn. Atli segir að hann hafi ekki tekið eftir einkennum sjúkdómsins hjá Ali.

„Ég tók ekkert eftir því. Hann var í fínum gír,“ sagði Atli sem segir Ali einn merkasta íþróttamann sögunnar.

„Það tekur enginn af honum að hann var þrefaldur heimsmeistari. Hann var alltaf skemmtilegastur og það er enginn íþróttamaður sem var hægt að vitna oftar í. Allt sem hann sagði var fyndið og hann var leikari. Hann var ótrúlegur,“ sagði Atli að lokum.

Það fór vel á með meistaranum og íslenska landsliðsmanninum.mynd/úr einkasafni
Teiknuð mynd sem birtist í bók 100 ára sögu Fortuna Düsseldorf.mynd/úr einkasafni
Box

Tengdar fréttir

Dánarorsök Ali var ígerð

Var ígerðin tilkomin vegna ótilgreindra náttúrulegra orsaka en Ali lést á föstudagskvöld á spítala í Phoenix í Arizona, 74 ára aldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×