Bíó og sjónvarp

The Simpsons spáðu fyrir um hálfleikssýningu Lady Gaga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lady Gaga á flugi á Energy-leikvanginum í gær.
Lady Gaga á flugi á Energy-leikvanginum í gær. vísir/epa
Mörgum er eflaust í fersku minni hvernig spáð var fyrir um það í Simpsons-þætti að Donald Trump yrði forseti Bandaríkjanna einn daginn en aðdáendur þáttanna sem horfðu á hálfleikssýningu Lady Gaga á Super Bowl í gær hafa eflaust kveikt á perunni varðandi annan spádóm þegar hún seig niður á Energy-leikvanginn í Houston.



Sjá einnig: Skemmtanabransinn spáði fyrir um sigur Trump


Það var nefnilega mjög svipað atriði í Simpsons-þættinum „Lisa goes Gaga“ frá árinu 2012. Í þættinum er Gaga með tónleika í Springfield og á einum tímapunkti flýgur hún upp frá sviðinu og yfir áhorfendaskarann á tónleikunum.

Hér að neðan má sjá klippu þar sem þessi tvö atriði eru borin saman. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×