Tónlist

The Knife hættir eftir tónleikana í Reykjavík

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Systkinin Karin og Olof Dreijer, sem skipa raftónlistardúettinn The Knife, tilkynntu það á heimasíðu sinni í gær að tónleikaferðalagið sem þau eru á núna verði þeirra síðasta. Síðan buðu þau uppá mjög dularfull skilaboð:

A handfull elf pee

That’s my soul

Spray it allover

Fill the bowl

Legs astride

An axe to grind

Generous actions with the speed of light

Without you my life would be boring

See you on the dance floor…

/Olof and Karin, The Knife

Karin staðfestir það síðan í viðtali við Dazed að komið sé að endalokum The Knife.

„Við hættum þegar við klárum tónleikaferðalagið í nóvember, þetta er okkar síðasta tónleikaferðalag. Okkur ber ekki skylda til að halda áfram, þetta ætti eingöngu og alltaf að vera gaman,“ segir hún en ekki er ljóst hvað tekur við hjá Karin.

„Ég ætla að hugsa um hvað gerist næst þegar við klárum tónleikaferðalagið,“ segir hún en bróðir hennar heldur áfram að vinna með tónlistarmanninum Houwaida Hedfi.

The Knife var stofnuð árið 1999 og kemur fram á Iceland Airwaves í haust. Það verða þeirra síðustu tónleikar en aðdáendur þeirra geta einnig séð sveitina í Stokkhólmi þann 31. október, Gautaborg 1. nóvember, Berlín 3. nóvember og London 6. nóvember.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×