Lífið

Þau kvöddu okkur árið 2014

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Nú fer árið senn að taka enda og féllu margir mætir einstaklingar frá. Fréttablaðið tekur saman þekktustu nöfn þeirra sem kvöddu okkur árið 2014.

Frankie Knuckles, 59 ára. Mars. Bandarískur plötusnúður sem var brautryðjandi í danstónlist.
Mickey Rooney. 93 ára. Apríl. Bandarískur leikari sem byrjaði sem barnastjarna og átti yfir 80 ára feril.
Philip Seymour Hoffman. 46 ára. Febrúar. Einn virtasti leikari Hollywood.
DJ Rashad. 35 ára. Apríl. Bandarískur plötusnúður sem var brautryðjandi í „footwork“ danstónlistarstefnunni frá Chicago.
Joan Rivers. 81 árs. September. Einn áhrifamesti kvenkyns grínisti Bandaríkjanna.
Lauren Bacall. 89 ára. Ágúst. Leikkona sem sló í gegn í film-noir myndum fimmta áratugarins.
Robin Williams. 63 ára. Ágúst. Einn ástsælasti grínisti Hollywood.
Mike Nichols. 83 ára. Nóvember. Bandarískur leikstjóri sem gerði meðal annars Catch-22 og The Graduate.
Shirley Temple. 85 ára. Febrúar. Ein frægasta barnastjarna allra tíma.
Paco de Lucía. 66 ára. Febrúar. Spænskur tónlistarmaður og einn besti gítarleikari heims.
Rik Mayall. 56 ára. Júní. Breskur grínisti og leikari sem sló meðal annars í gegn í þáttunum Bottom og The Young Ones.
Bobby Womack. 70 ára. Júní. Bandarískur soul-söngvari sem er líklega þekktastur fyrir lagið Across 110th Street.
Pete Seeger, 94 ára. Janúar. Bandarískur mótmælasöngvari og guðfaðir hippanna. Frægasta lag hans er Where Have All the Flowers Gone.
Maya Angelou. 86 ára. Maí. Áhrifamikið bandarískt skáld og aðgerðasinni.
Oscar de la Renta. 82 ára. Oktober. Dóminísk-bandarískur tískuhönnuður sem var einn sá virtasti í geiranum.
H.R. Giger. 74 ára. Maí. Svissneskur listamaður sem er líklega þekktastur fyrir að hanna geimveruna í Alien-myndunum.
Gabriel G. Márquez. 87 ára. Apríl. Kólumbískur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi, þekktur fyrir töfraraunsæi sitt.
Richard Attenborough 90 ára. Ágúst. Einn ástsælasti leikari Breta fór yfir móðuna miklu.
Vera Chytilová. 85 ára. Mars. Tékkneskur leikstjóri sem ruddi brautina fyrir tékknesku nýbylgjuna
Alexander Shulgin. 88 ára. Júní. Goðsagnakenndur efnafræðingur sem kynnti vísindaheiminn fyrir MDMA á áttunda áratugnum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×