Innlent

Þarf að loka hótelum ef til verkfalls kemur

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Um sjötíu prósent starfsmanna Keahótela eru í Starfsgreinasambandinu.
Um sjötíu prósent starfsmanna Keahótela eru í Starfsgreinasambandinu. Vísir
Framkvæmdastjóri Keahótela sér fram á að þurfa að loka hótelum sínum ef til allsherjarverkfalls Starfsgreinasambandsins kemur. Um sjötíu prósent starfsmanna þeirra eru í sambandinu.

Verkfallsaðgerðir tíu þúsund félagsmanna Starfsgreinasambandsins hefjast á fimmtudaginn með tólf tíma allsherjarvinnustöðvun, ef ekki næst samkomulag í kjaradeilu þeirra og Samtaka atvinnulífsins fyrir þann tíma. Í næstu viku leggja starfsmennirnir svo niður störf í tvo sólarhringa og svo aftur í vikunni þar á eftir en 26. maí hefst svo ótímabundið verkfall.

Verkfallsaðgerðirnar taka til launafólks á almennum vinnumarkaði utan höfuðborgarsvæðisins. Verkfallið kemur til með að hafa mikil áhrif á starfsemi margra fyrirtækja.

„Komi til allsherjarverkfalls hérna á þessu svæði, þá er það mjög einfalt hvað gerist hjá okkur. Við siglum í strand bara á fyrstu dögunum,“ segir Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Keahótela.

Félagsmenn Starfsgreinasambandsins sjá um þrif á hótelum, aðstoða í eldhúsi og á bar, svo eitthvað sé nefnt. Páll segist ekki getað hugsað það til enda hvernig fari fyrir öllum þeim fjölda ferðamanna sem eiga bókaða gistingu ef loka þarf hótelinu.

„Það er bara ómögulegt að segja hvað gerist. Þetta er það stórt mál að ég bara vil ekki trúa því að það komi til þess.“


Tengdar fréttir

Litlar krónutöluhækkanir en miklar prósentuhækkanir í kröfum SGS

Launakröfur SGS eru um hækkanir á bilinu 98-127 þúsund krónur á mánuði næstu þrjú árin. Jafngildir um 50% hækkun. Formaður SGS segir háar hækkanir til kennara og lækna ekki hafa ruggað bátnum. Framkvæmdastjóri SA segir að 50% hækkun yrði fordæmisgefandi.

Útilokað að fallast á kröfur Starfsgreinasambandsins

Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að það muni valda glundroða á vinnumarkaði ef einstök fyrirtæki innan samtakanna geri sérsamninga við verkalýðsfélög. Hann segir útilokað að fallast á kröfur Starfsgreinasambandsins og sakar forystumenn þess um ábyrgðarleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×