Innlent

Þarf að greiða gjöld af Cruiser

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Land Cruiser, þó örlítið nýrri útgáfa en sú sem um ræðir.
Land Cruiser, þó örlítið nýrri útgáfa en sú sem um ræðir. Toyota
Yfirskattanefnd (YSKN) staðfesti úrskurð Ríkisskattstjóra um að ekki skuli fella niður bifreiðagjöld af gömlum Toyota Land Cruiser. Deilt var um aldur bifreiðarinnar.

Í lögum er kveðið á um að ekki skuli greiða bifreiðagjöld af bifreiðum 25 ára eða eldri. Eigandi bifreiðarinnar sagði að hún væri árgerð 1993 en þá var hún fyrst skráð á götuna. Í bókum Samgöngustofu var hún hins vegar skráð árgerð 1994.

YSKN taldi ekki forsendur til annars en að byggja á skráningu Samgöngustofu. Kröfu um niðurfellingu gjaldsins var því hafnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×