Innlent

Þarf að borga tvöfalt til að berja Bieber augum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Rut Þorsteinsdóttir notar ekki hjólastól dagsdaglega en hefur ekki þrótt í langar ferðir eða heila tónleika án hans.
Rut Þorsteinsdóttir notar ekki hjólastól dagsdaglega en hefur ekki þrótt í langar ferðir eða heila tónleika án hans. vísir/stefán
Aðstoðarmanneskja Rutar Þorsteinsdóttur, konu með CP-fötlun, fær ekki að fylgja henni á tónleika Justins Bieber nema að keyptur sé sérstakur miði fyrir hana. Rut þarf því að kaupa tvo miða til að komast á tónleikana.

Síðari tónleikar kanadíska popparans í Kópavogi fara fram í kvöld. Áætlað er að nærri 40.000 gestir verði á tvennum tónleikunum.

„Þetta er afar hamlandi fyrir mig og þýðir að ég þarf að borga rúmlega þrjátíu þúsund krónur til að komast á tónleikana,“ segir Rut.

Þegar Rut og fjölskylda hennar ræddu við Senu fengust þau svör að ekkert væri hægt að gera, ef Rut vildi fara á tónleikana þyrfti hún að kaupa annan miða.

Sjá einnig:Mismunun tónleikagesta

Víða erlendis, til að mynda á Norðurlöndunum, er sá háttur hafður á að aðstoðarmenn þroska- eða hreyfihamlaðra fái að fara með á tónleikana í fylgd með tónleikagestinum án sérstakrar greiðslu. Síðastliðinn vetur var Rut til að mynda í samskiptum við skipuleggjendur Eurovision og hefði hún látið verða af því að fara til Stokkhólms hefði aðstoðarmaðurinn fylgt með.

CP-fötlun hefur stundum verið kölluð heilalömun á íslensku. Sjúkdómurinn er ein algengasta tegund hreyfihömlunar.

irtingarmynd hans er afar mismunandi. Sumir sem glíma við hann þroskast næstum eðlilega en aðrir þurfa aðstoð við nánast allar athafnir daglegs lífs.

„Ég þarf til dæmis ekki að nota hjólastól en ég hef ekki þrótt til að ganga lengi eða standa heila tónleika án aðstoðar,“ segir Rut. Af þeim sökum er hún ekki með liðveislu frá sveitarfélagi sínu eða aðstoðarmann í gegnum NPA. Slíkir aðstoðarmenn fá kostnað af tónleikum endurgreiddan.

Á stærri tónleikum er að finna sérstakan pall fyrir einstaklinga með fötlun. Rut segir mjög misjafnt hvar slíkur pallur er staðsettur.

„Þegar við fórum á Justin Timberlake var pallurinn alveg aftast í salnum. Ég kann betur við aðstöðuna í Laugardalshöllinni. Þar er pallurinn á milli stæðisins og stúkunnar og að auki eru stólar fyrir fylgdarmennina. Aðstaðan þar er betri en þar þarftu einnig að borga fyrir aðstoðarmanneskjuna,“ segir Rut. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×