Skoðun

Þakkir til Listasafns ASÍ

Eiríkur Þorláksson skrifar
Síðasta sýningin sem haldin verður í sýningarsölum Listasafns ASÍ í Ásmundarsal við Freyjugötu stendur nú yfir. Listasafn ASÍ hefur verið öflugur vettvangur myndlistar hér á landi frá því á sjöunda áratug síðustu aldar, en það var stofnað 1961. Fyrstu sýningarnar voru haldnar í þröngum húsakosti að Laugavegi 18 og síðar Laugavegi 31, þar sem þá var húsnæði Alþýðubankans en nú er Biskupsstofa. Byltingin í starfsemi Listasafns ASÍ hófst hins vegar 1980, þegar það komst í eigið sýningarhúsnæði að Grensásvegi 16. Þar fór fram öflugt sýningarhald um langt árabil, og önnur starfsemi blómstraði einnig, og bar þar hæst brautryðjendastarf í bókaútgáfu á sviði myndlistar, sem varð öðrum söfnum til eftirbreytni. Þarna var heimili safnsins þar til það flutti í Ásmundarsal árið 1996 þar sem það hefur verið síðan, og þar sem listunnendur hafa notið stöðugra og margra minnisstæðra sýninga síðustu tuttugu ár.

Þegar Listasafn ASÍ hóf sýningarstarf sitt við Grensásveg árið 1980 var myndlistarvettvangur á höfuðborgarsvæðinu fátæklegur í samanburði síðari tíma; þar var nær eingöngu um að ræða Kjarvalsstaði, Norræna húsið og Nýlistasafnið, auk þess sem Bogasalur Þjóðminjasafnsins og menningarmiðstöðin Mokka-kaffi voru mikilvægir sýningarstaðir; sýningarsalurinn á Grensásvegi var því kærkomin viðbót.

Nú þegar Listasafn ASÍ hverfur af þessum vettvangi er umhverfið hins vegar orðið mun ríkulegra; má nefna opnun Hafnarborgar (1983), Ásmundarsafns (1983), Listasafns Sigurjóns Ólafssonar (1984), Listasafns Íslands (1987), Listasafns Kópavogs – Gerðarsafns (1994) og Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi (2000), auk þess sem öflug listasöfn hafa verið opnuð á Akureyri, í Hveragerði, Reykjanesbæ, Hornafirði og víðar; þá hafa sprottið upp bæði listamannarekin og atvinnugallerí, sem starfa mörg af miklum krafti. Það geta því margir orðið til að taka upp mögulegan slaka af því að Listasafn ASÍ hætti að reka sýningarsal.

Mikilvægir fjármunir

Það er ljóst að félagsmenn verkalýðsfélaga landsins hafa lagt fram mikla og mikilvæga fjármuni í gegnum tíðina til að tryggja starfsemi Listasafns ASÍ. Það ber að þakka. Þá hefur það verið ein gæfa safnsins að hafa notið starfskrafta dugmikilla safnstjóra í gegnum tíðina – þeirra Hjörleifs Sigurðssonar, Þorsteins Jónssonar, Sólveigar Georgsdóttur, Ólafs Jónssonar og nú síðast Kristínar G. Guðnadóttur. Það ber einnig að þakka. Þrátt fyrir undarleg viðbrögð samtaka listamanna á liðnu vori þegar fregnir bárust af þeim breytingum á starfsemi safnsins sem nú eru að verða að veruleika tel ég fullvíst að þeir fjölmörgu listamenn sem hafa notið þess að sýna í sölum safnsins í 36 ár hugsi með hlýhug og þakklæti til Listasafns ASÍ.

Þeir listunnendur sem hafa notið sýninga safnsins í gegnum árin held ég að beri einnig mikinn hlýhug til safnsins. Sem einn slíkur vil ég hér með þakka Listasafni ASÍ kærlega fyrir mig, og óska safninu velfarnaðar í starfi sínu til framtíðar.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×