Erlent

Þakinn 109 kílóum af býflugum og sló heimsmet

Atli Ísleifsson skrifar
Metið var sett í borginni Tai'an í Shandong héraði.
Metið var sett í borginni Tai'an í Shandong héraði.
Kínverskur býflugnabóndi sló heimsmet eftir að hafa verið þakinn býflugum sem samtals vógu 109 kíló. Fulltrúi heimsmetabókar Guinness var á staðnum og staðfesti metið.

Aðrir býflugnabændur aðstoðuðu við að koma býflugunum á bóndann Gao Bingguo, en metið var sett í borginni Tai'an í Shandong héraði.

Sjá má myndskeið af metinu að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×