Handbolti

Þakið ætlaði af Ásvöllum þegar dollan fór á loft - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haukar urðu í kvöld Íslandsmeistarar í handknattleik karla þegar liðið vann Aftureldingu í hreinum úrslitaleik um titilinn.

Leikurinn fór 34-31 og fór fram á Ásvöllum en þó nokkur spenna var í leiknum undir lokin. Þetta er annað árið í röð sem liðið verður Íslandsmeistari og var troðfullt á Ásvöllum í kvöld.

Eftir leikinn brutust út mikil fagnaðarlæti og ætlaði þakið að rifna af kofanum þegar titillinn fór á loft eins og sjá má hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×