Lífið

Þær Tvær: Óþægilegasta matarboð sögunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það getur oft verið skemmtilegt þegar ný kærasta kemur inn í vinahópinn eins og Þær Tvær gerðu grín af í síðasta þætti.

Í sketsinum má sjá þegar par býður vini sínum í mat, ásamt nýrri kærustu hans. Hún þykir liðleg í söng og allt í einu bregður hún á leik og tekur lagið I Dreamed a Dream úr söngleiknum Les Misérables. 

Þátturinn er sýndur á Stöð 2. Þær tvær eru Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir en þær leika aðalhlutverkin í þættinum og skrifa handritið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×