Erlent

Þáðu meira en tuttugu milljarða króna í mútur

Samúel Karl Ólason skrifar
Starfsmenn FIFA þáðu milljónir dala í mútur í meira en 24 ár, meðal annars um hvar halda ætti stórmót. Rannsakendur segjast vita af um tólf tilvikum þar sem mútugreiðslur fóru fram, þar á meðal um að halda heimsmeistaramótið í Suður-Afríku 2010.

Níu starfsmenn FIFA og fimm aðrir hafa verið ákærðir í Bandaríkjunum og búið er að handtaka sjö þeirra. Sepp Blatter, forseti FIFA, er ekki meðal þeirra. Samtökin ætla sér að halda forsetakosningar á föstudaginn þrátt fyrir handtökurnar. Blatter er talinn líklegur til að vinna þessar kosningar í fimmta sinn.

Þá hafa yfirvöld í Sviss hafið rannsókn á boðsferlunum sem leiddu til þess að Rússland og Katar fengu heimsmeistaramótin 2018 og 2022.

Á vef BBC kemur fram að mennirnir sem ákærðir hafa verið í Bandaríkjunum eru sakaðir um að hafa þegið meira en 150 milljónir dala (um 20 milljarðar króna) í mútugreiðslur á frá árinu 1991.

Meðal hinna handteknu er Jeffrey Webb, varaforseti FIFA og yfirmaður fótboltasamtaka Norður- og Mið-Ameríku. Til stendur að framselja mennina sjö frá Sviss til Bandaríkjanna, en sex þeirra hafa höfðað mál til að komast hjá því að vera framseldir.

Fyrrverandi varaforseti FIFA, Jack Warner, hefur ekki verið handtekinn en hann er ákærður fyrir að þiggja um 10 milljónir dala (tæplega einn og hálfur milljarður króna) í mútur frá yfirvöldum í Suður-Afríku. Hann hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem hann segist saklaus.

Hér má sjá frá blaðamannafundi saksóknara í Bandaríkjunum í dag.

Meðal þess sem mennirnir eru ákærðir að þiggja mútur vegna sjónvarpssamninga og markaðsréttinda. Að þiggja mútur til að hafa áhrif á hvar mót eru haldin; þar á meðal heimsmeistaramótið í Suður-Afríku 2010 og Suður-Ameríku bikarinn 2016. Þar að auki eru þeir ákærðir fyrir peningaþvott og svik.

Á vef AP fréttaveitunnar kemur fram að skýrsla sem FIFA lét gera um útboðsferli heimsmeistaramótanna 2018 og 2022 hafi leitt til þess að lögreglan hafi gert húsleit í höfuðstöðvum FIFA í Sviss í dag. Skýrslan var aldrei birt í heilu lagi en rannsakendur í Sviss fengu hana í hendur í nóvember.

Hér má svo sjá frá blaðamannafundi FIFA fyrr í dag.

Tengdar fréttir

Geir um handtökurnar: Mikið áfall fyrir knattspyrnuhreyfinguna

„Á þessari stundu veit ég ekkert meira en það sem hefur komið fram í fjölmiðlum,“ sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, í samtali við Guðjón Guðmundsson, aðspurður um handtökur á sjö hátt settum stjórnarmönnum FIFA í nótt. Mennirnir sem um ræðir voru ákærðir í Bandaríkjunum en þeir eru sakaðir um spillingu; peningaþvætti og mútustarfsemi.

Forsetakjör FIFA fer fram

Walter De Gregorio, fjölmiðlafulltrúi FIFA, segir líklegt að kosningarnar til forseta sambandsins fari fram á föstudaginn þrátt fyrir aðgerðir svissnesku lögreglunnar í nótt, þar sem sex háttsettir stjórnarmenn FIFA voru handteknir í Zürich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×