Lífið

Það verður mögulega mjög sveitt

Baldvin Þormóðsson skrifar
Katla hefur stefnt að 90's kvöldinu lengi.
Katla hefur stefnt að 90's kvöldinu lengi. mynd/aðsend
„Við erum búin að stefna lengi að því að halda þetta 90's kvöld,“ segir plötusnúðurinn Katla Ásgeirsdóttir en hún blæs til 90's tónlistarveislu á Húrra í kvöld ásamt Ísari Loga Arnarssyni.

„Við ætlum að spila danstónlist og dálítið í takt við það sem var verið að spila á klúbbunum á þessum tíma,“ segir plötusnúðurinn en einnig munu Einar Sonic og Ari, bróðir Ísars, stíga á svið.

„Ég held að þetta verði geðveikt og mögulega mjög sveitt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×