Enski boltinn

Það þurfti mark umferðarinnar til sigra De Gea - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Christian Benteke.
Christian Benteke. Vísir/Getty
Enska úrvalsdeildin hefur tekið saman fimm flottustu mörk 17. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk í gær með 2-0 sigri Chelsea á Stoke.

David De Gea, markvörður Manchester United, hefur staðið sig frábærlega í markinu í vetur og það eru ekki margir sem hafa náð að skora hjá honum á tímabilinu.

Christian Benteke, framherji Aston Villa, skoraði hinsvegar frábært mark framhjá spænska markverðinum um helgina og það er að sjálfsögðu í hópi fimm flottustu markanna úr umferð helgarinnar.

Aðrir sem komust á þennan útvalda lista voru Stewart Downing hjá West Ham, Adam Johnson hjá Sunderland, Ashley Barnes hjá Burnley og Érik Lamela hjá Tottenham.

Það er hægt að sjá öll þessi mörk í myndbandinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×