Innlent

Það sem við vitum um bankaránið í Borgartúni

Bjarki Ármannsson skrifar
Lögregla gefur ekki upp hvað var verið að gera í húsinu við Stigahlíð 20 fyrr í kvöld.
Lögregla gefur ekki upp hvað var verið að gera í húsinu við Stigahlíð 20 fyrr í kvöld. Vísir/Ernir
Heldur hefur verið dregið úr leitinni að grunuðum bankaræningjum í Öskjuhlíðinni, sem staðið hefur yfir frá því á þriðja tímanum. Mannanna tveggja er áfram leitað en þeir eru grunaðir um að hafa rænt útibú Landsbankans við Borgartún fyrr í dag.

Ránið átti sér stað skömmu fyrir klukkan hálftvö í dag. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mikla fjármuni mennirnir höfðu á brott með sér en Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hefur sagt þá óverulega.

Fjöldi viðskiptavina og starfsfólks var í útibúninu. Vitni að ráninu segir ræningjana hafa verið með læti og hrist gjaldkerann á meðan ráninu stóð.

Lögreglan hefur deilt myndum af hinum grunuðu, sem virðast vopnaðir hnífi og skammbyssu.
Útibúi Landsbankans var lokað eftir ránið og verður áfram lokað á morgun. Þá var viðskiptavinum og starfsfólki boðin áfallahjálp. Engin slys urðu á fólki.

Lögreglan hefur deilt myndum af hinum grunuðu, sem virðast vopnaðir hnífi og skammbyssu. Óskar hún eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á þá.

Tveir hafa verið handteknir í tengslum við málið en þeir eru þó ekki grunaðir um að hafa rænt bankann. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Kristjáni Ólafi Guðnasyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er ekki búið að handtaka fleiri.

Mennirnir frömdu ránið á sendiferðabíl Hverafoldar bakarís, sem stolið var í Hafnarfirði um klukkan hálfellefu í morgun. Bíllinn fannst svo mannlaus í Barmahlíð í Reykjavík eftir bankaránið.

Umfangsmikil leit lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Öskjuhlíð og í Hlíðahverfinu hófst á þriðja tímanum og var þyrla Landhelgisgæslunnar meðal annars notuð við leitina.Vísir/Vilhelm
Umfangsmikil leit lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Öskjuhlíð og í Hlíðahverfinu hófst á þriðja tímanum og var þyrla Landhelgisgæslunnar meðal annars notuð við leitina.

Lögregla girti af aðkomu að fjölbýlishúsi við Stigahlíð 20 en fólk gat þó farið inn og út úr húsinu. Lögregla gefur ekki upp hvað var verið að gera í húsinu né hvort mennirnir tveir hafi verið handteknir þar.

Lítið er hægt að gefa upp um rannsókn lögreglu að svo stöddu. Kristján Ólafur segir það verða að koma í ljós hvort áfram verði leitað í nótt.


Tengdar fréttir

Vitni lýsir ráninu í Landsbankanum

Bankaræningjarnir ógnuðu starfsfólki og viðskiptavinum bankans með vopnum. Inni í bankanum voru meðal annars börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×