Skoðun

Það sem #metoo kenndi okkur

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm og Þorsteinn V. Einarsson skrifar
Þúsundir kvenna stigu fram í nóvember á síðasta ári og sögðu sögu sína af áreiti og kynbundnu ofbeldi sem þær höfðu mátt þola undir merkjum #metoo. Atvikin höfðu átt sér stað á vinnustöðum, heimilum, skemmtistöðum og raunar hvar sem konur voru. Konur af erlendum uppruna, fatlaðar konur, íþrottakonur stjórnmálakonur og svo mætti lengi halda áfram. Það þarf ekkert að tíunda áhrifin sem áreitið og ofbeldið hefur haft á konur. Loksins þegar ekki var lengur komist hjá því að hlustað væri á reynsluheim kvenna urðu samfélagsbyltingar sem enginn komst ósnortinn undan.

Við tókum bæði þátt í þessum byltingum, en með nokkuð ólíkum hætti. Við lærðum mikið af þessarri reynslu hver með okkar hætti. Það er mikilvægt að vanda til verka þegar unnið er að jafn viðkvæmu og brothættu málefni og kynbundu ofbeldi. Gæta þarf að því að allir upplifi öryggi og að þeirra rödd heyrist.

Baráttukonur ruddu brautina

Þegar frásagnir #metoo fengu að líta dagsins ljós fór í gang eitthvað stærra en við höfðum gert okkur í hugarlund. Samfélagið sat eins og lamað, las frásagnirnar og leit loksins í eigin barm. Það varð breyting á því hvernig við hugsum um áreiti og ofbeldi. Þá breytingu á #metoo byltingin ekki ein. Við stöndum í þakkarskuld við þær ótal konur sem hafa rutt brautina, allt frá Rauðsokkum til annarra samfélagsmiðlabyltinga á borð við #þöggun #konurtala og #höfumhátt. Allar þær byltingar sem komu á undan greiddu götuna.

#metoo kenndi okkur að kvennasamstaðan er einstök. #metoo kenndi okkur að konur eru alls ekki konum verstar. #metoo kenndi okkur að við öll getum haft áhri og tekið þátt í að breyta heiminum. #metoo kenndi okkur líka að vandamálið er miklu djúpstæðara en við höfðum mörg gert okkur grein fyrir.

Þorsteinn V. Einarsson
#karlmennskan og eitruð karlmennska

Eftir standa áleitnar spurningar sem samfélagið allt þarf að svara. Gerendur eru nánast eingöngu karlar. Hvernig ölum við upp drengi þessa lands svo að þeir komi fram af virðingu við konur?

Um leið og við rjúfum þögnina um áreiti og kynbundið ofbeldi verðum við að uppræta eitraða karlmennsku. Undir merkjum #karlmennskan deildu karlar reynslu sinni af eitraðri karlmennskuímynd. Þar komu fram sláandi frásagnir sem konur höfðu aldrei heyrt, í öfugu samhengi við sögurnar í #metoo sem margir karlar höfðu aldrei heyrt.

Framtíðin

Kvenfrelsi er ein af grunnstoðum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Því leggjum við þunga áherslu á að það verði stigin raunveruleg skref til þess að vinna gegn margþættri mismunun í Reykjavík. Við verðum að halda áfram að vinna með þolendum og styðja sérstaklega við bakið á þeim sem búa við margþætta mismunun; hinsegin fólki, öldruðum, innflytjendum og fötluðum konum. Við verðum að leggja áherslu á fræðslu meðal annars með því að efla jafnréttiskólann sem Vinstri græn stofnuðu. Við verðum að tryggja að konur, börn og ungmenni séu örugg og upplýst í öllu frístunda-, íþrótta- og skólastarfi m.a. með því að sjá til þess að til séu forvarnaráætlanir og aðgerðaráætlanir.

Við stöndum alltaf með þolendum ofbeldis og fordæmum alla þöggunartilburði gegn femínískum baráttukonum.  Við getum og ætlum að útrýma kynbundnu ofbeldi og mismunun í Reykjavík.

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm, ein af forsprökkum #metoo í sviðslistum og kvikmyndagerð, skipar 4 sæti á framboðslista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar

Þorsteinn V. Einarsson, einn af forsprökkum #karlmennskan, skipar 3 sæti á framboðslista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×