Lífið

Það geta allir skapað

Baldvin Þormóðsson skrifar
Tom Kelley segir að fólk sé feimið við að koma með skapandi lausnir.
Tom Kelley segir að fólk sé feimið við að koma með skapandi lausnir. mynd/einkasafn
„Við erum oft feimin við að koma með skapandi lausnir í ýmsum verkefnum,“ segir Karl Guðmundsson en hann stendur fyrir fyrirlestri Toms Kelley í Háskólabíói klukkan tólf í dag.

Kelley er einn eigenda hönnunarskrifstofunnar IDEO og höfundur metsölubókarinnar The Art of Innovation en hann gaf nýlega út bókina Sköpunarkjarkur sem þýdd var á íslensku.

„Það er almennt viðurkennt að nýsköpun og skapandi hugsun séu drifkrafturinn að baki árangri fyrirtækja og einna verðmætustu eiginleikar leiðtoga á okkar dögum,“ segir Karl. „Við þurfum ekki öll að vera listamenn en við getum verið skapandi lögfræðingar, læknar, framkvæmdastjórar eða sölumenn.“

Karl kynntist Kelley þegar hann bjó í San Francisco og starfaði hjá Ekso Bionics og segir það hafa verið tilviljun að þeir hafi kynnst á góðgerðarsamkomu. „Við vorum að kynna tækið okkar sem hjálpar mænusködduðum að ganga,“ segir Karl.

„Honum leist svo vel á verkefnið að það endaði með því að við unnum verkefnið með IDEO og upp úr því hittumst við oft og hann talaði mikið um þessa bók sem ég var svo áhugasamur um.“

Í bókinni reynir höfundurinn að fá fólk til að verða meira skapandi einstaklingar og bókin inniheldur nokkrar reynslusögur fólks sem fer eftir aðferðum Kelleys.

„Þegar ég kláraði að lesa hana þá fannst mér hún bara þurfa að koma út á íslensku og hótaði að þýða hana sjálfur ef forlagið myndi ekki finna góðan þýðanda,“ segir Karl og hlær.

„Það er gríðarlegur áhugi fyrir þessu á Íslandi. Þetta á við fleiri en bara nýsköpunarfyrirtæki, það geta allir komið með meira skapandi lausnir í þeim verkefnum sem þeir sinna dagsdaglega.“

Eins og áður hefur komið fram fer fyrirlesturinn fram í Háskólabíói klukkan 12.00 og er hann haldinn í samstarfi við Hönnunarmiðstöðina, Símann og Háskóla Íslands en aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×