Glamour

Það eru allir æstir í Birki Bjarnason

Ritstjórn skrifar
Birkir er rísandi stjarna en það verður spennandi að sjá hvert hann fer eftir þetta stórkostlega mót.
Birkir er rísandi stjarna en það verður spennandi að sjá hvert hann fer eftir þetta stórkostlega mót. Glamour/Getty
Það er óhætt að segja að landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason sé að gera allt vitlaust um þessar mundir. Allur heimurinn er að missa sig yfir honum og það er ekki bara vegna góðs gengis á Evrópumótinu.

Breski fatarisinn ASOS óskaði eftir því að Birkir yrði næsta fyrirsæta þeirra á Twitter í gærkvöldi á meðan á leiknum stóð. Birkir þáði boðið góðfúslega eftir leikinn. Það verður spennandi að sjá hvort að það verði eitthvað úr því samstarfi en Birkir mundi eflaust plumma sig vel í því hlutverki.

Það er þó ekki aðeins ASOS sem hefur áhuga á Birki en breski miðillinn Daily Mail birti heila grein tileinkaða honum. Þar líkja þau honum við þrumugoðið Þór og ungan Brad Pitt. 

Á Twitter hafa notendur verið að missa sig yfir Birki og útlitinu hans eins og má sjá neðar í fréttinni. Þar er honum meðal annars líkt við NFL stjörnuna og eiginmann ofurfyrirsætunnar Gisele Bundchen, Tom Brady

Það verður gaman að fylgjast með hvert Birkir stefnir eftir Evrópumótið. Hvort að hann næli sér í fyrirsætusamning og verði næsti David Beckham verður að koma í ljós. Við erum allavega á Birkisvagninum svo það sé fært til bókar. 

Þessi kinnbein eru ekkert til þess að grínast með.

A photo posted by Birkir Bjarnason (@birkirbjarnason) on

A photo posted by Birkir Bjarnason (@birkirbjarnason) on

Var ekki kominn tími á að skella í eina selfie?

A photo posted by Birkir Bjarnason (@birkirbjarnason) on






×