Menning

Það er ekkert sem stoppar okkur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Ég verð með blóm sem reyndar eru rellur sem snúast eftir því hvernig vindurinn blæs,“ segir Gerður um verk sín á sýningunni Þræðir sumarsins.
"Ég verð með blóm sem reyndar eru rellur sem snúast eftir því hvernig vindurinn blæs,“ segir Gerður um verk sín á sýningunni Þræðir sumarsins. Fréttablaðið/Daníel
„Textílfélagið var stofnað 1974. Það hefur verið virkt allan tímann og nú er starfið með miklum blóma. Við hittumst mánaðarlega og skipuleggjum eitthvað nýtt í tilefni afmælisins.

Fólk á eftir að verða vart við okkur víða um land,“ segir Gerður Guðmundsdóttir, ein þeirra sem standa að sýningunni Þræðir sumarsins við Dyngju listhús í Eyjafjarðarsveit sem opnuð er í dag klukkan 12.

Átta listakonur úr félaginu hafa komið upp útilistaverkum sem verða til sýnis í allt sumar og sum jafnvel lengur. Þarna verður líf í tuskunum, „þvottur“ á snúrum sem hangið getur í aldir, túnið skreytt óvenjulegum blómabreiðum og skúlptúrum og sáð verður fyrir þráðum í lín svo aðeins fátt eitt sé nefnt.

Þessi sýning er að frumkvæði Guðrúnar Höddu handverks-og listakonu í Fífilbrekku.



Gerður segir mikla breidd í félaginu. „Fólk er í skúlptúr, textíl, hönnun og öllu mögulegu, meira að segja er saumað í steina. Það er ekkert sem stoppar okkur,“ segir hún.



Listamennirnir og verk þeirra:

Anna Gunnarsdóttir:  Kraftur hringanna.

Bjargey Ingólfsdóttir: Að hafa til hnífs og skeiðar.   

Gerður Guðmundsdóttir: Bláhverflar.

Guðrún Hadda Bjarnadóttir: Línakur.

Hrafnhildur Sigurðardóttir: Í mark.

Jóna Imsland: Til þerris í nokkrar aldir I.

Rósa Júlíusdóttir: Endurunnið verk.

Steinunn B. Helgadóttir: Motta úr hrosshári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×