Menning

Það er ákveðinn leikur í þessu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þóra sýnir teikningar og prent og einnig þrívíð verk.
Þóra sýnir teikningar og prent og einnig þrívíð verk. Vísir/Stefán
Þóra Sigurðardóttir myndlistarkona opnar sýninguna Teikning / Rými í sýningarsal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu að Tryggvagötu 17 á morgun, föstudag, klukkan 18.

„Þetta eru allt verk frá síðustu tveimur árum en ég er við sama heygarðshornið og áður; það er visst leiðarhnoð sem ég elti,“ segir Þóra sem er að dreifa úr myndunum sínum í salnum. Hún kveðst hafa verið í myndlist svo lengi sem elstu menn muna. Ferlið gangi út á að þróa með sér vitund um heiminn.

„Ég byggi jafnan á sama útgangs­punkti, að finna mér hlut í hversdagslegu umhverfi okkar, greina hann og kljúfa upp, bæði í teikningu og prenti. Teikningin býður upp á að vera marglaga og prentið getur líka farið hvað ofan í annað. Það er ákveðinn leikur í þessari vinnu, annars hefði ég ekki úthald,“ segir Þóra brosandi og bætir við – á heimspekilegum nótum: „Orkan og andinn búa í efninu, hvort með öðru en ekki aðskilin.“

Gengið er inn í sal Íslenskrar grafíkur hafnarmegin. Hann er opinn frá miðvikudegi til sunnudags frá klukkan 14 til 18 og sýningin hennar Þóru stendur til 28. febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×