Menning

Það er ákveðið karþarsis að sleppa sér svona

Magnús Guðmundsson skrifar
Ilmur Kristjánsdóttir segir að það sé skýrara að allir stefni að sama marki í leikhúsinu en í pólitíkinni.
Ilmur Kristjánsdóttir segir að það sé skýrara að allir stefni að sama marki í leikhúsinu en í pólitíkinni. Visir/Stefán
Farsinn er tegund af gamanleik sem á rætur að rekja allt aftur til Frakklands á sautjándu öld. Greinin átti einkum sitt blómaskeið í Bretlandi á eftirstríðsárunum og síðustu áratugum síðustu aldar var sýndur hjá Leikfélagi Reykjavíkur fjöldi farsa við gríðarlegar vinsældir, bæði í Iðnó og á hinum víðfrægu miðnætursýningum í Austurbæjarbíói. Það er því skemmtilega viðeigandi að farsinn skuli eiga sér framhaldslíf í Borgarleikhúsinu í meðförum leikfélagsins en farsinn Úti að aka, eftir enska leikskáldið Ray Cooney, verður frumsýndur á stóra sviði hússins í kvöld í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar.



Á meðal leikenda í aðalhlutverki er Ilmur Kristjánsdóttir sem snýr aftur á fjalirnar eftir að hafa verið meðal annars í hringiðu borgarmálanna. „Síðast var ég á sviði þegar ég var kasólétt í Jeppi á fjalli, í lok árs 2013. Það er eiginlega lengra liðið en ég átti von á svona þegar ég hugsa þetta. Mér finnst alltaf gott að fara aðeins frá en ég verð að játa að ég var farin að sakna þess mjög mikið að vera á sviði. En þegar maður fer svona frá þá verður það ákaflega skýrt hversu tengdur maður er leikhúsinu í raun og veru.“



 

Bænheyrð



En hvernig skyldi Ilmur hafa kunnað við sig í borgarpólitíkinni á þessum tíma? „Bara mjög vel. Þetta er búið að vera mjög lærdómsríkt eins og það er alltaf að láta vaða og stökkva í djúpu laugina. Það hefur verið skemmtilegt að kynnast bæði nýju fólki og nýjum vettvangi og fá að beita sér þar, vonandi til góðs. Ég verð að játa að ég var alveg skíthrædd við þetta fyrst en að sama skapi er það ákaflega góð tilfinning að öðlast öryggi inn í það. Það stækkar mann.“



Ilmur segir að heimar leikhússins og stjórnmálanna séu að mörgu leyti ólíkir. „Það er kannski meira þessi tilfinning að tilheyra í leikhúsinu, það er meira svona „hver fyrir sig” stemning í pólitíkinni þó að maður tilheyri auðvitað innan flokka. Í leikhúsinu er skýrara að við stefnum að sama marki þó við séum í ólíkum hlutverkum.“



Nú þegar Ilmur er komin aftur má segja að hún stökkvi beint í hringiðu leikhússins með stóru hlutverki í farsa þar sem hraðinn og ærslin eru mikil. En hvers vegna að koma aftur núna? „Já, það var nú soldið fyndið hvernig þetta kom til. Ég var búin að vera í smátíma í pólitíkinni og það var satt best að segja búið að vera soldið erfitt. Þá kom þetta tilboð, að leika í farsa, en ég hef aldrei leikið í farsa áður, og ég eiginlega þráði ekkert heitar en að standa á sviði og heyra hlátur. Þannig að það var eins og ég væri bænheyrð,“ segir Ilmur og hlær við tilhugsunina.



 

 

Halldór Gylfason, Ilmur Kristjánsdóttir og Hilmir Snær Guðnason í hlutverkum sínum í Úti að aka, í Borgarleikhúsinu.Mynd/Grímur Bjarnason
Ákveðið ástand



Ilmur segir að Úti að aka sé skemmtilega hefðbundinn misskilningsfarsi enda sé vart hægt að finna það leikskáld í samtímanum sem hefur náð viðlíka tökum á þessu formi og Ray Cooney. Að auki hafi Gísli Rúnar Jónsson tekið að sér að staðfæra verkið og það auki enn á ánægjuna fyrir íslenska áhorfendur. „Þetta fjallar um hann Jón sem er leigubílstjóri en hann á tvö heimili, tvær eiginkonur og ég leik aðra þeirra. Hann á eitt heimili í Mosfellsbæ og eitt í Hafnarfirði og er að reyna að halda þessum blekkingarleik gangandi. Hann á börn á sama aldri, stelpu og strák, á hvort á sínu heimilinu og þegar leikritið byrjar þá eru þau að kynnast á netinu. Þau eru að fara að hittast en Jón gerir allt sem í hans valdi stendur til þess að koma í veg fyrir það með óborganlega fyndnum afleiðingum.“



En skyldu Ilmur og leikhópurinn ekkert hafa áhyggjur af því að tími farsans í leikhúsinu sé liðinn? „Nei, veistu það, þó þetta sé stundum alveg glataður húmor því það er auðvitað ekkert fyndið við það að maðurinn sé að stunda tvíkvæni. En maður setur þetta í eitthvert hólf og ég held að fólk sem fer á farsa það geri það líka til þess að leyfa sér að hlæja að einhverri vitleysu. Það er samningurinn. Það er svo frelsandi og núna erum við búin að sýna fyrir áhorfendur í aðdraganda frumsýningar og það er hreinlega eins og fólk missi það. Það er svo gaman. Þetta er svona ákveðið kaþarsis að sleppa sér svona og fólk hreinlega dettur í eitthvert ástand þar sem það bara hlær og það má láta allt vaða.“



Ilmur segir að það sé því vissulega gaman að koma aftur í leikhúsið. „Þetta er svo frábær og kærleiksríkur hópur. Ég finn að það hefur jákvæð áhrif á mig og hina vinnuna mína líka vegna þess að ég er glaðari og hef meira að gefa. Það er yndislegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×