Fótbolti

Það besta sem Lampard gæti gert fyrir félagið væri að fara

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frank Lampard í New York. Hann hefur verið meiri ferðamaður en fótboltamaður.
Frank Lampard í New York. Hann hefur verið meiri ferðamaður en fótboltamaður. Vísir/Getty
Tími Frank Lampard hjá bandaríska félaginu New York City FC hefur verið sorgarsaga og í huga margra knattspyrnusérfræðinga Vestanhafs er hann nú verstu kaup allra tíma hjá bandarísku fótboltaliði.

Pistill Bob Williams í Telegraph setur fram athyglisverða sýn á stöðuna. Bob Williams skrifar nefnilega um það mesti greiðinn sem Frank Lampard gæti nú gert sínu félagi væri hreinlega að yfirgefa það.

Frank Lampard hefur ekki spilað eina einustu mínútu á þessu tímabili og knattspyrnustjórinn Patrick Vieira er ekki viss um hvenær hann getur spilað aftur.

New York City þarf ekki á manni í hans stöðu að halda því liði er með nóg af miðjumönnum í sínum hóp. Liðið vantar aftur á móti framherja.

New York City borgar Lampard sex milljónir dollara í árslaun, eða um 733 milljónir íslenskra króna. Hvert lið í bandarísku deildinni getur haft þrjá rándýra erlenda leikmenn sem hafa ekki áhrif á launaþakið.

Með því að hætta eða fara frá félaginu þá myndi Frank Lampard gefa liðinu tækifæri að ná í öflugan og dýran erlendan framherja sem myndi hjálpa liðinu mikið.

Frank Lampard hefur ekki átt upp á pallborðið hjá mörgum stuðningsmönnum New York City liðsins þegar hann kom ekki þegar hann átti að koma heldur var auka fimm mánuði hjá enska liðinu Manchester City.

Lampard spilaði síðan ekki sinn fyrsta leik fyrr en 373 dögum eftir að hann skrifaði undir samning við liðið. Síðan þá hefur hann spilað samtals 10 leiki og í þeim hefur hann skorað 3 mörk og gefið 1 stoðsendingu á 733 mínútum.

Það er því ekkert skrítið að stuðningsmennirnir séu löngu búnir að fá nóg og vilji miklu frekar fá öflugan sóknarmenn heldur en þennan 37 ára gamla meidda miðjumann sem enginn veit hvenær getur spilað næst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×