Innlent

TF-SIF send til Miðjarðarhafs vegna erfiðra rekstrarhorfa

atli ísleifsson skrifar
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hélt um helgina til Grikklands.
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hélt um helgina til Grikklands. landhelgisgæslan
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hélt um helgina til Grikklands þar sem hún og áhöfnin munu næstu vikurnar sinna landamæraeftirliti á austanverðu Miðjarðarhafi fyrir Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að til að byrja með verði flugvélin í Miðjarðarhafsverkefnum til 20. febrúar en til skoðunar sé að þau verði framlengd þar til í lok mars. Þá komi til greina að vélin sinni aftur verkefnum á svæðinu fyrir Frontex með haustinu.

„Landhelgisgæslan hefur áður sinnt margvíslegum verkefnum fyrir Frontex en undanfarna mánuði hefur óvissa ríkt um framhaldið. Í byrjun ársins óskaði Frontex eftir flugvél frá aðildarríkjunum í verkefni með mjög stuttum fyrirvara. Í ljósi fjárhagsstöðu Landhelgisgæslunnar var ákveðið að bregðast við beiðninni og eftir stuttar samningaviðræður var TF-SIF send út.

Rekstrarhorfur Landhelgisgæslunnar fyrir árið 2017 eru erfiðar og hefur þegar verið gripið til aðgerða til að haga starfseminni í samræmi við fjárheimildir. Meðal annars hafa samningar við lausráðna starfsmenn ekki verið endurnýjaðir og dregið hefur verið úr rekstrarkostnaði á öllum sviðum. Reynt verður af fremsta megni að halda úti lágmarksþjónustu.

Enn er of snemmt að segja hvort sértekjur af erlendum verkefnum skili sér að því marki sem ný rekstraráætlun Landhelgisgæslunnar gerir ráð fyrir. Það ætti þó að skýrast á næstu vikum. Beðið verður með frekari aðhaldsaðgerðir í rekstri stofnunarinnar uns endanleg niðurstaða um erlend verkefni á árinu liggur fyrir,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×