Glamour

Teyana Taylor gefur út líkamsræktarmyndband

Ritstjórn skrifar
Teyana Taylor vakti mikla athygli í tónlistarmyndbandi Kanye West.
Teyana Taylor vakti mikla athygli í tónlistarmyndbandi Kanye West. Mynd/Skjáskot Youtube
Dansarinn og söngkonan Teyana Taylor gerði allt vitlaust í lok sumars þegar hún dansaði í tónlistarmyndbandi Kanye West við lagið Fade. Taylor dansaði á nærfötunum, löðruð í olíu og voru ansi margir sem öfunduðu líkama hennar. 

Teyana hefur lengi verið atvinnudansari en hún segir að það sé honum að þakka að hún nái að halda sér í svona góðu formi. Hún eignaðist barn fyrir minna en ári síðan. Dansinn í bland við matarræðið segir hún að sé lykillinn á bakvið gott form. Kannski ekki beint nýjar upplýsingar en núna ætlar hún að sýna fólki hvernig hún heldur sér í formi. 

Hún hefur sent frá sér kynningarmyndband fyrir líkamsræktarþáttarröð sem verður bráðum frumsýnd. Líklegt verður að teljast að æfingarnar samanstandi að mestu leyti af dansi. Það verður spennandi að sjá hvort að þeir sem nýti sér æfingarnar nái að komast í jafn gott form og hún. 

Hér fyrir neðan má bæði sjá kynningarmyndbandið sem og tónlistarmyndbandið við lagið Fade með Kanye West.






×