Tevez ætlar ekki að biðja Ferguson afsökunar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2012 23:30 „
Það er engu líkara en að Ferguson sé forseti Englands," sagði Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, við argentínska fjölmiðla í dag. Hann hefur ekki í hyggju að biðjast afsökunar á því að hafa haldið á spjaldi sem á stóð „Hvíl í friði, Fergie" á sigurhátíð City á mánudaginn. Þá var liðið að fagna meistaratitlinum sem það vann daginn áður. City baðst afsökunar fljótlega eftir að atvikið kom upp en sjálfur segist Tevez ekki sjá eftir neinu. „Það segir enginn að hann þurfi að biðjast afsökunar í hvert sinn sem hann talar illa um leikmenn eða segir eitthvað hræðilegt um mig," bætti Tevez við. „Svo þegar einhver stígur fram og segir brandara - þá á sá hinn sami að biðjast afsökunar. Ég ætla ekki að gera það." Tevez var í byrjunarliðinu þegar að City vann 3-2 sigur á QPR en var skipt af velli í seinni hálfleik. City vann leikinn og þar með deildina með því að skora tvívegis í uppbótartíma. En Tevez missti af sigumarkinu sem landi hans, Sergio Agüero, skoraði. „Ég var kominn inn í búningsklefann. Ég hélt að þetta væri búið eftir að Dzeko skoraði. Ég fór því ekki neitt. En svo skoraði Kun og allt varð vitlaust." Hann var spurður um framtíðina en vildi lítið segja um hana. „Nú ætla ég að taka því rólega með fjölskyldu minni. Við skulum svo sjá til."
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira