Viðskipti erlent

Tesla nær ekki markmiði um fjölda afhentra bíla

Sæunn Gísladóttir skrifar
Tesla Model S fyrir utan Tesla-verksmiðjuna í Kaliforníu.
Tesla Model S fyrir utan Tesla-verksmiðjuna í Kaliforníu. Vísir/AP
Annan ársfjórðunginn í röð hefur rafbílaframleiðandinn Tesla ekki náð því markmiði sem fyrirtækið hefur sett sér um fjölda afhentra bíla. Útlit er fyrir að bílaframleiðandinn nái ekki markmiðinu fyrir árið í heild.

Á öðrum ársfjórðungi afhenti Tesla 14.730 bíla, en markmiðið var 17.000 bílar. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að ástæða þess að færri bílar voru afhentir sé meðal annars sú að fleiri bílar séu í framleiðslu en venjulega, og mjög mikil framleiðsla hafi leitt til þess að helmingur bílanna var framleiddur á síðustu fjórum vikum.

Áætlun Tesla er að afhenda 50.000 bíla á síðari helmingi ársins. Ólíklegt er þó að það takist í ljósi þess að einungis tókst að afhenda 29.140 bifreiðar á fyrri helmingi ársins. Jafnvel þó það takist verður heildarfjöldi bíla sem afhentir verða á árinu 80 til 90 þúsund, sem er lágmarksáætlun.

Tesla kynnti á árinu nýja ódýrari gerð af bíl sem nefnist Model 3 Sedan. Yfir 373.000 hafa pantað hann og hefst framleiðsla á honum ekki fyrr en síðari hluta næsta árs.


Tengdar fréttir

Hlutabréf í Tesla hrynja

Elon Musk hefur lagt til yfirtöku Tesla á SolarCity sem er í fjárhagsvandræðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×