Bílar

Tesla Model Y jepplingur næsti bíll Tesla

Finnur Thorlacius skrifar
Svona gæti Tesla Model Y jepplingurinn litið út.
Svona gæti Tesla Model Y jepplingurinn litið út.
Elon Musk greindi frá því í síðustu viku að nú væri unnið að næsta bíl fyrirtækisins og að hann fái nafnið Model Y. Hann verður jepplingur, en á stærð við Model 3 bílinn sem er að fara í fjöldaframleiðslu nú. Model Y mun verða með vængjahurðir eins og Model X jeppinn. Því er hann hálfgert afsprengi Model 3 bílsins líkt og Model X var afspengi af Model S bílnum.

Búast má við því að Model Y verði því ekki mikið dýrari en Model 3 bíllinn sem kosta á aðeins um 35.000 dollara. Framleiðsla Model Y er liður í því að koma framleiðslu Tesla bíla uppí 500.000 bíla á ári, en það mun ekki gerast á þessu ári líkt og fyrri áætlanir Elon Musk hljóðuðu uppá.

Tesla hefur þá trú, líkt og margur annar bílaframleiðandinn, að flokkur litla jepplinga verði söluhæsti flokkur bíla í heiminum innan tíðar og í því ljósi kemur ekki á óvart að slíkur bíll verði fyrir valinu sem næsti framleiðslubíll Tesla. Búast þeir Tesla menn við því að Model Y verði söluhæsti bíll Tesla þegar sala hans hefst.

Elon Musk greindi einnig frá því að framleiðsla á Model 3 með fjórhjóladrifi verði ekki hafin fyrr en á næsta ári og má búast við því að hann verði nokkru öflugri en Model 3 með rafmótorum aðeins á einum öxli.






×