Bílar

Tesla hagnaðist loksins

Finnur Thorlacius skrifar
Tesla Model S heldur áfram að seljast vel.
Tesla Model S heldur áfram að seljast vel.
Rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla í Bandaríkjunum skilaði hagnaði á þriðja ársfjórðungi ársins, en það hefur ekki gerst síðastliðin tvö ár. Er þetta aðeins í annað skiptið í sögu Tesla sem heill ársfjórðungur skilar hagnaði.

Hagnaðurinn nú nemur 2,5 milljörðum króna og þessi niðurstaða er betri en markaðurinn hafði spáð. Hlutabréf í Tesla tóku stökk uppávið við þessar fréttir í gær og hækkaði um 5,6%, eða um 11,3 dollara á hlut.

Hagnaður á hvern hlut á þriðja ársfjórðungi var 0,71 dollar, en á þriðja ársfjórðungi í fyrra var 0,58 dollara tap á hvern hlut. Tesla seldi samtals 25.185 Model S og X bíla á þessum þriðja ársfjórðungi og jók söluna um 68% frá fyrra ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×