Enski boltinn

Terry sýnir góða takta með golfkúlu | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
John Terry kom til Aston Villa í sumar og var strax gerður að fyrirliða liðsins.
John Terry kom til Aston Villa í sumar og var strax gerður að fyrirliða liðsins. vísir/getty
John Terry, fyrirliða Aston Villa, er fleira til lista lagt en að spila fótbolta.

Terry birti myndband á Instagram þar sem hann sést halda golfkúlu á lofti, bæði með golfkylfu og fótunum.

Afskaplega skemmtilega gert hjá Terry sem gekk í raðir Villa frá Chelsea í sumar.

Villa hefur ekki farið vel af stað á tímabilinu og situr í 13. sæti ensku B-deildarinnar með 10 stig eftir átta umferðir.

Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason leikur með Villa og hefur gert frá því í janúar á þessu ári.

A post shared by John Terry (@johnterry.26) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×