Enski boltinn

Terry stoltur af Solanke

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Solanke kemur hér inn á í leiknum í gær.
Solanke kemur hér inn á í leiknum í gær. Vísir/Getty
John Terry óskaði hinum sautján ára Dom Solanke til hamingju með sinn fyrsta leik með aðalliði Chelsea eftir sigur þess á Maribor í Meistaradeild Evrópu í gær.

„Frábær sigur í kvöld og ég er hæstnánægður með að hafa skorað mitt fyrsta mark á tímabilinu,“ skrifaði Terry á Instagram-síðuna sína eftir leikinn en þar birti hann gamla mynd af sér með Solanke.

„Ég er afar stoltur af Dom Solanke og tel að þetta verði aðeins fyrsti leikur hans af mörgum í búningi Chelsea. Mynd af ungum JT og afar ungum Dom Solanke fylgir.“

Solanke er enskur unglingalandsliðsmaður og hefur verið á mála hjá Chelsea frá sjö ára aldri. Jose Mourinho, stjóri félagsins, hefur áður lýst aðdáun sinni á piltnum og segir að hann geti bara sjálfum sér um kennt ef hann verður ekki landsliðsmaður innan fárra ára.


Tengdar fréttir

Drogba og Terry búnir að skora fyrir Chelsea - sjáið mörkin

Gömlu brýnin Didier Drogba og John Terry eru báðir búnir að skora fyrir Chelsea á móti slóvenska liðinu Mariborg en liðin mætast nú í 3. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram á Stamford Bridge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×