Terry missir líklega aftur fyrirliðabandið skömmu fyrir stórmót Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2012 09:15 John Terry. Mynd/Nordic Photos/Getty
Stjórn enska knattspyrnusambandins er nú að fara yfir það hvort að John Terry fái að halda fyrirliðabandi enska landsliðsins. Terry hefur verið ásakaður um kynþáttaníð gagnvart Anton Ferdinand hjá QPR og framundan eru réttarhöld yfir Terry eftir Evrópumótið í sumar. John Terry hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og heimildarmenn úr hans röðum segja að hann muni ekki afsala sér fyrirliðabandinu vegna þessa máls. Upptaka af Terry á Loftus Road virðist sýna hann öskra ljót orð í átt að Ferdinand en Terry heldur því fram að þar hafi hann aðeins verið að neita því að hafa sagt þessi orð við Ferdinand. Missi Terry fyrirliðabandið verður það í annað skiptið sem hann missir það skömmu fyrir stórmót. Fabio Capello tók af honum fyrirliðabandið fyrir HM í Suður-Afríku 2010 eftir að up komst um framhjáhald Terry. Rio Ferdinand, bróðir Antons, tók þá við fyrirliðabandinu en Steven Gerrard var svo fyrirliði á HM eftir að Rio meiddist. Þetta mál mun liggja yfir Terry eins og skugginn alla þá fimm mánuði sem eru fram að Evrópumótinu og það er erfitt að sjá Terry takast að halda fyrirliðabandinu allan þennan tíma á meðan breskir fjölmiðlar munu fara hamförum í þessu máli.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira